Skilmálar

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á www.partybomban.is

Almennt 

Tilefni.is er rekin af Tilefni & Viðburðir ehf, kt. 620523-0890, vsk númer : 149164, Austurvegur 9, 800 Selfoss. 

Netpantanir
Pantanir sem berast okkur er pakkað inn eins fljótt og auðið er og reynum við að senda allar sendingar af stað samdægurs. Sé varan ekki til verður haft samband við kaupanda og gefum við þá upp áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað. Helíum blöðrur þarf að sækja til okkar nema samið sé um annað.

Afhendingartími
Við sendum alla virka daga. Frá Mánudegi til föstudags. Sendingar geta tekið 1 – 3 virka daga að skila sér til kaupanda. Við reynum þó að hafa biðina sem stysta og afhenda vöruna eins fljótt og hægt er. Einnig er hægt að óska eftir því að sækja vörurnar til okkar, þér að kostnaðarlausu.

Helíum blöðrur þarf að sækja til okkar á Austurveg 9 í Studio Sport.

Sendingarkostnaður
Áður en greiðsla fer fram bætist sendingarkostnaður við pöntunina. Sendingarkostnaðurinn er samkvæmt gjaldskrá Íslandspóstsins/Dropp. 


Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vörur sem pantaðar eru af heimasíðu okkar er hægt að skila innan tveggja vikna (14 daga) og fá endurgreiðslu. Skilyrðin eru að varan sé í upprunalegu ástandi og þegar hún var keypt, þ.e. Í upprunalegum umbúðum, ónotuð óskemmd og kvittun þarf að fylgja.

Vinsamlegast hafið samband við okkur á netfangið tilefni@tilefni.is áður en vöru er skilað.

Hafi Tilefni sent ranga vöru til viðskiptavins getur viðskiptavinur sent vöruna til baka á kostnað Tilefni. Ef það er gert skal senda staðfestingu á að vara sé komin í póst á tilefni@tilefni.is. Að sama skapi sendir Tilefni þá rétta vöru til viðskiptavinar honum að kostnaðarlausu um leið og staðfesting er móttekin. Viðskiptavinur getur þó að sjálfsögðu óskað eftir endurgreiðslu vilji hann það frekar.

Verð og skattar
Öll verð á heimasíðu tilefni.is eru með 24% virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Tilefni.is áskilur sér rétt á að hætta við viðskipti ef rangt verð hafi verið gefið upp. Þar að auki áskiljum við okkur fullan rétt til að breyta verðum fyrirvaralaust.

Gölluð vara
Tilefni.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta, ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Tilefni mun upplýsa kaupanda eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna. Sendingarkostnaður (ef við á) er aðeins endurgreiddur sé vara gölluð.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing
Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Tilefni og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Endilega sendu okkur póst á tilefni@tilefni.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.

Leiguskilmálar

Leigufyrirkomulag:

  1. Leiguvörur eru bókaðar í gegnum netfangið okkar tilefni@tilefni.is
  2. Reikningur fyrir leigunni er sendur í sömu viku og tilefnið er. 
  3. Sjá má í vörulýsingu hvort viðskiptavinur þurfi að sækja vörur á leigu eða hvort vörunni sé komið til viðskiptavinar. 
  4. Tilefni býður upp á afhendingu á öllum leiguvörum gegn vægu gjaldi á Suðurlandi og Höfuðborgarsvæðinu. Gjald er mismunandi eftir stærð á vörum. 
  5. Ef viðskiptavinur hefur greitt fyrir leigu vörur fyrirfram og vill hætta við bókun gilda eftirfarandi reglur: Þegar meira en 48 klukkustundir (2 sólarhringir) eru í afhendingu fæst leiguverðið endurgreitt að fullu. Til að fá bókunina endurgreidda þarf að senda tölvupóst á tilefni@tilefni.is með bókunarnúmeri og reikningsupplýsingum.
  6. Hætti viðskiptavinur við bókun þegar minna en 48 klukkustundir (2 sólarhringir) eru í afhendingu fæst 50% af leiguverði endurgreitt. Til að fá bókunina endurgreidda þarf að senda tölvupóst á tilefni@tilefni.is með bókunarnúmeri og reikningsupplýsingum.

Leigutími/verð:

  1. Leigutími á vöru er almennt tæpur sólarhringur og miða öll verð við það. Ef viðskiptavinur óskar eftir að leigja vöru lengur en uppgefinn tími þá er greitt 50% af leiguverðinu fyrir hvern auka dag sem viðskiptavinur vill hafa vöruna nema samið sé um annað. Ef viðskiptavinur hefur hug á lengri leigu en 3 dagar getum við hjá Tilefni gefið tilboð í gegnum tölvupóstinn okkar tilefni@tilefni.is
  2. Sækja má leiguvöru klukkan 14:00 þann dag sem leigja á vöruna nema samið sé um annað.
  3. Leiguvöru skal skilað fyrir klukkan 12 á þeim skiladegi sem samið var um. 
  4. Sé leiguvöru ekki skilað á þeim tíma sem samið var um skal viðskiptavinur greiða fullt leiguverð fyrir hvern liðinn dag frá skiladegi.

 

Ábyrgð/tryggingar:

  1. Þegar viðskiptavinur hefur fengið leiguvöru afhenda færist ábyrgð og áhætta á leiguvörum yfir á viðskiptavin eða þegar starfsmenn Tilefni hafa lokið við uppsetningu.
  2. Við yfirfærslu ábyrgðar er viðskiptavinur ábyrgur fyrir öllu tjóni sem verður á leiguvöru og/ef leiguvara glatast. Hvert tjón er metið fyrir sig af starfsmönnum Tilefni. 
  3. Öllum leiguvörum skal skilað hreinum. Ef því er ekki fylgt eftir skal viðskiptavinur greiða þrifgjald sem er mismunandi eftir vörum. Þrifgjald getur verið frá 2.500 – 20.000 krónur.
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0